Tuesday, April 23, 2024
HomeForsíðaUpphitun fyrir UFC Fight Night: Gustafsson vs. Manuwa

Upphitun fyrir UFC Fight Night: Gustafsson vs. Manuwa

UFC_Fight_Night_Gustafsson

Annað kvöld fer fram eitt stærsta bardagakvöld í sögu Íslendinga en þá mætir Gunnar Nelson aftur í búrið. Gunnar berst gegn Omari Akhmedov en bardagi þeirra er fyrsti bardagi á aðal hluta bardagakvöldsins. Á bardagakvöldinu eru 10 frábærir bardagar og hér er útlistun á bardögunum.

Alexander Gustafsson (15-2) gegn Jimi Manuwa (14-0-0) – léttþungavigt (-93 kg)

Í aðalbardaga kvöldsins mætir Svíinn Alexander Gustafsson heimamanninum Jimi Manuwa. Upphaflega átti Gustafsson að mæta Antonio Rógerio Nogueira (Lil Nog) en hann meiddist eins og svo oft áður og því steig Jimi Manuwa upp.

Alexander Gustafsson er einn af bestu léttþungavigtarmönnum heims um þessar mundir. Gustafsson barðist síðast gegn meistaranum Jon Jones og var bardaginn einn besti bardagi síðasta árs. Ekki bjuggust margir við að Gustafsson ætti mikla möguleika í Jones en Gustafsson sýndi og sannaði að hann er frábær bardagamaður. Bardaginn var gríðarlega jafn en á endanum sigraði Jones eftir dómaraákvörðun í hnífjöfnum bardaga.

Gustafsson æfði box frá 10 ára aldri þar til hann snéri sér að MMA. Hann var einn af fremstu boxurum Svíðþjóðs og varð meistari á landsvísu í Ólympískum hnefaleikum. Gustafsson var vandræðagemsi á sínum yngri árum og átti til að lenda í slagsmálum úti á götu. Eftir að hafa setið inni 18 ára gamall ákvað hann að snúa við blaðinu. Hann hlutti úr heimabæ sínum og setti stefnuna á að verða atvinnumaður í MMA.

Það hefur gengið eftir þar sem hann er einn fremsti léttþungavigtarmaður heims í dag. Bæði töpin hans hafa komið í UFC, annað gegn Phil Davis og hitt gegn Jon Jones. Phil Davis er framúrskarandi glímumaður og sigraði Gustafsson með hengingu í fyrstu lotu. Eftir bardagann ákvað Gustafsson að æfa með Davis til að læra af glímumeistaranum. Í dag eru þeir góðir vinir og hefur Gustafsson tekið miklum framförum í glímunni. Hann er til að mynda eini maðurinn sem hefur náð að taka meistarann Jon Jones niður.

Jimi Manuwa fæddist í Nígeríu en flutti tveggja ára til Englands. Þessi 34 ára Breti kom inn með hvelli í UFC þegar hann sigraði Kyle Kingsbury 28. september 2012. Hann hefur síðan þá sigrað tvo bardaga í UFC með fremur óvenjulegum hætti. Báðir andstæðingar hans hafa meiðst á fæti og þurft að hætta í miðjum bardaga. Manuwa var þrátt fyrir það að vinna báða bardagana. Manuwa er gríðarlega höggþungur en þykir ekki eins góður glímumaður. Ætli hann sér að sigra þennan bardaga þarf hann að halda bardaganum standandi.

Manuwa byrjaði seint að æfa MMA og komst nokkrum sinnum í kast við lögin vegna slagsmála og þjófnaðar á sínum yngri árum.  Í dag hefur hann, líkt og Gustafsson, algjörlega snúið við blaðinu og hjálpar nú krökkum af götunni. Manuwa er ósigraður en hann hefur aldrei farið í dómaraákvörðun. 13 af 14 bardögum hans hafa endað með rothöggi eða tæknilegu rothöggi. Hann mætir nú sínum lang sterkasta andstæðingi til þess og það verður spennandi að sjá hvernig hann stenst þessa prófraun.

Spá MMA frétta: Gustafsson reynist of stór biti fyrir Manuwa. Gustafsson sigrar eftir hengingu í 3. lotu.

Michael Johnson (14-8) gegn Melvin Guillard (31-12-2) – léttvigt (-70 kg)

Þessir tveir fyrrum æfingarfélagar mætast í næst síðasta bardaga kvöldsins. Þessi gæti hæglega orðið besti bardagi kvöldsins! Upphaflega átti Guillard að mæta Ross Pearson en Pearson þurfti að hætta við bardagann vegna meiðsla.

Michael Johnson hefur stórbætt sig á síðustu 12 mánuðum og litið virkilega vel út í síðustu tveimur bardögum. Eftir að hafa hafnað í öðru sæti í 12. seríu The Ultimate Fighter raunveruleikaþáttarins hefur árangur hans í UFC verið misjafn. Sex sigrar og fjögur töp er ekkert til að hrópa húrra fyrir. Johnson sýndi í sigri á Joe Lauzon að það býr meira í honum en fólk taldi. Hann hefur bætt boxið sitt verulega og það sást í sigri á Gleison Tibau eftir rothögg. Johnson var áður einhæfur glímumaður en hefur nú vakið athygli fyrir skemmtilegar frammistöður og verður gaman að sjá hvernig hann kemur til leiks á laugardaginn.

Melvin Guillard er einkennilegur fýr. Þetta er maður sem virðist hafa alla hæfileika í heiminum til að ná langt í íþróttinni en hausinn er einfaldlega ekki rétt skrúfaður á. Hann flakkar milli bardagaklúbba og þykir erfiður í samskiptum.  Þrátt fyrir að vera aðeins 30 ára er hann með 47 bardaga að baki. Hann er gríðarlega höggþungur og hefur sigrað 20 bardaga með rothöggi. Á þessum langa ferli virðist hann ekki hafa náð að laga sinn helsta veikleika sem er gólfglíman. Guillard hefur tapað eftir uppgjafartak í níu skipti og mun sennilega aldrei komast nálægt titilbardaga í UFC.

Spá MMA frétta: Það getur allt gerst í bardaga hjá Guillard. Hann gæti rotað Johnson eftir 30 sekúndur en líka tapað eftir hengingu snemma í fyrstu lotu. Flestir veðbankar telja Johnson líklegri en Guillard rotar Johnson í fyrstu lotu.

Brad Pickett (23-8) gegn Neil Seery (13-9) – fluguvigt (-57 kg)

Upphaflega átti Pickett að mæta Ian McCall en eins og svo oft áður þurfti McCall að draga sig úr bardaganum vegna meiðsla. Pickett mætir þess í stað UFC nýliðanum Neil Seery.

Brad Pickett er vinsæll bardagamaður og sérstaklega á heimaslóðunum í Bretlandi. Hann fer nú niður um þyngdarflokk í fluguvigtina en hann hefur lengst af barist í bantamvigtinni. Pickett er góður alls staðar en er helst þekktur fyrir gott box. Hann er gríðarlega skemmtilegur bardagamaður og eru allir bardagar hans frábær skemmtun en hann hefur fjórum sinnum hlotið bónus fyrir besta bardaga kvöldsins. Það er ekki að ástæðulausu að Pickett er einn af uppáhalds bardagamönnum Dana White, forseta UFC.

Hver er þessi Neil Seery? Neil Seery er 36 ára nýliði í UFC og fær hér tækifæri lífs síns. Eftir að Ian McCall meiddist var skortur á mögulegum andstæðingum fyrir Pickett og því þurfti UFC að semja við Seery. Seery er, eins og Pickett, með bakgrunn í boxi og því ætti þessi bardagi að fara að mestu leiti fram standandi. Bardagaskorið hans er ekkert sérstakt en það verður að taka tillit til þess að hann er ósigraður í fluguvigtinni og barðist lengi vel nokkrum þyngdarflokkum fyrir ofan sig.

Spá MMA frétta: Pickett er of góður til að tapa gegn nýliða og sigrar með rothöggi í annarri lotu.

Gunnar Nelson (11-0-1) gegn Omari Akhmedov (12-1) – veltivigt (-77 kg)

Íslendingar eru eðlilega lang spenntastir fyrir þessum bardaga. Þetta er aðal bardagi kvöldsins í hjörtum Íslendinga.

Gunnar Nelson þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Hann er ósigraður í MMA og hefur sigrað 11 bardaga í röð eftir jafntefli í sínum fyrsta bardaga. Gunnar er feikilega sterkur gólfglímumaður og hefur sigrað sjö bardaga með uppgjafartaki.

Omari Akhmedov er sömuleiðis góður glímumaður en ekki á sama getustigi og Gunnar. Akhmedov er villtur og gríðarlega höggþungur andstæðingur. Hann hefur sigrað sex bardaga eftir rothögg og fjóra eftir uppgjafartak. Akhmedov kemur frá Dagestan í Rússlandi en mikill fjöldi bardagamanna hafa komið í UFC frá Dagestan og öðrum héröðum í Norður-Kákasus svæðinu í Rússlandi. Enginn af rússnesku bardagamönnunum frá þessu svæði hafa tapað í UFC. Veðbankarnir telja Gunnar sigurstranglegri og verður að koma í ljós á laugardaginn hvort þeir hafi rétt fyrir sér eður ei.

Þetta voru þeir fjórir bardagar sem eru á aðal hluta bardagakvöldsins en hér eru fyrstu sex upphitunarbardagarnir.

Ilir Latifi (7-3 ) gegn Cyrille Diabate (19-9-1) – léttþungavigt (-93 kg)

Latifi áttist nú seinast við Gegard Mousasi sem er með betri bardagamönnum í UFC. Latifi tók bardagann með stuttum fyrirfara og náði aldrei að ógna Mousasi. Hinn franski Cyrille Diabate tapaði nú seinast gegn Jimi Manuwa sem keppir gegn Alexander Gustafsson í aðalbardaga kvöldsins. Diabate er góður sparkboxari og mjög langur svo ólíklegt er að Latifi muni ógna Diabate nema þá með því að ná honum í gólfið.

Spá MMA frétta: Cyrille Diabate sigrar með rothöggi í annari lotu.

Mats Nilsson (11-2-1) gegn Luke Barnatt (7-0) – millivigt (-84 kg)

Eftir að hafa tekið þátt í raunveruleikaþáttunum “The Ultimate Fighter” hefur Barnatt barist tvisvar fyrir UFC og komið úr búrinu í bæði skiptin sem sigurvegari. Nilsson hefur hins vegar aldrei barist undir merkjum UFC. Sterkasta hlið Nilsson er að fara með bardagann í jörðina og vinna sig út frá því. Barnatt er hins vegar sterkur í öllum hliðum MMA svo að bardaginn verður líklegast erfiður fyrir nágranna okkar frá Svíþjóð.

Spá MMA frétta: Luke Barnatt sigrar eftir dómaraúrskurð.

Brad Scott (9-2) gegn Claudio Henrique da Silva (9-1) – millivigt (-84 kg)

Báðir bardagamenn kjósa að fara með bardagann í jörðina. Oft á tíðum verða bardagar sem þessir að algjöru stríði eða mjög ómerkilegir. Scott vill helst vera mjög nálægt andstæðingi sínum og beita fellum eða “clinchi”. Silva er hins vegar mjög góður í gólfinu en á í miklum erfileikum með að ná andstæðingi sínum í gólfið þar sem þú þarft að setja felluna upp með t.d höggum eða spörkum. Scott er mun betri í að ná andstæðingi sínum í ójafnvægi svo að hann nái fellunni.

Spá MMA frétta: Brad Scott sigrar eftir dómaraúrskurð.

Davey Grant (8-2) vs. Roland Delorme (9-2-1) – bantamvigt (-61 kg)

TUF aðdáendur eiga að þekkja Davey Grant sem keppanda í liði Rondu Rousey. Davey lenti í öðru sæti eftir tap á úrslitakvöldi þáttana gegn Chris Holdsworth. Davey er gríðarlega öflugur bardagamaður og hafði unnið 8 bardaga í röð, nánast alla í fyrstu lotu með uppgjafartaki eða rothöggi áður en hann mætti Holdsworth. Roland Delorme var einnig í TUF þáttunum en hann var í liði Mayhem Miller í 14. seríu þáttanna. Báðir menn eru að koma til baka eftir töp og því til mikils að vinna.

Spá MMA frétta: Delorme sigrar eftir dómaraákvörðun.

Igor Araújo(24-6-2) vs. Danny Mitchell (14-4-1) – veltivigt (-77 kg)

Danny Mitchell ætti að vera öllum íslenskum MMA aðdáendum kunnur en hann mætti okkar manni, Gunnari Nelson, í Cage Contender árið 2010. Danny Mitchell hefur einnig mætt Mjölnis manninum Cathal Pendred en sá bardagi endaði með jafntefli. Mitchell kom fram á lista MMA Frétta um menn með óheppilegustu viðurnefnin, en hann kallar sig „The cheesecake assasin“. Hann er einnig fyrsti fyrrum andstæðingur Gunnars sem kemst í UFC og er þetta fyrsti UFC bardagi hans. Andstæðingur Danny, Igor er með mikla reynslu og æfir hjá hinu rómaða Jackson MMA. Igor er mikill glímumaður, eins og margir samlandar hans frá Brasilíu, og hefur unnið 17 bardaga með uppgjafartaki og unnið 13 af seinustu 14 bardögum sínum. Hörkubardagi framundan!

Spá MMA frétta: Araújo sigrar eftir uppgjafartak í 2. lotu.

Phil Harris (22-11-1) vs. Louis Gaudinot (6-3) – fluguvigt(-57 kg)

Þessi bardagi lyktar eins og “loser leaves town“ bardagi. Báðir hafa þrjá UFC bardaga að baki, þar af tvo töp og eru báðir að koma af tapi. Louis Gaudinot tók þátt í 14. seríu TUF þar sem hann vann meðal annars verðlaun fyrir besta bardaga seríunnar. Gaudinot er talinn vera 11. sterkasti fluguvigtarmaðurinn í UFC.

Spá MMA frétta: Gaudinot sigrar eftir dómaraákvörðun.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular