HomeInnlentÝmir Friðgeirs með rothögg í Tælandi

Ýmir Friðgeirs með rothögg í Tælandi

Hinn ósigraði Muay Thai kappi Ýmir Friðgeirsson sigraði bardaga sinn í Tælandi fyrr í dag með rothöggi í þriðju lotu á bardagakvöldi í Thongsala Stadium gegn heimamanni að nafni Singdam.

Ýmir hefur æft síðustu 2-3 árin í Imperium Fight Club bæði Muay Thai og Jiu-Jitsu. Þá hefur hann alltaf æft mikið með Þorgilsi Eiði Einarssyni, atvinnumanni í Muay Thai, þegar hann er staddur á landinu. Þorgils er búsettur á eyjunni Koh Phangan, þar sem Ýmir er staddur og þar fór bardaginn fram. Ýmir ákvað að eyða fimm vikum á eyjunni með Þorgils og æfa í MAA (Martial Arts Academy) og á hann tvær vikur eftir af ferðinni en telur ólíklegt að hann berjist aftur í þessari ferð.

Þessi bardagi var fjórði Muay Thai bardagi Ýmis en hina þrjá hefur hann ferðast til Póllands fyrir og segist núna bara bíða eftir að Ísland rífi sig í gang og leyfi honum að berjast heima fyrir. Muay Thai Samband Íslands var nýlega stofnað og lítur út fyrir að loksins sé eitthvað að gerast í þeim málum.

Ýmir er enn ósigraður með fjóra sigra og ekkert tap.

Brot úr bardaganum má sjá hér að neðan en Ýmir náði góðu hnéi í síðuna á andstæðingnum eftir clinch, en Ýmir sem er southpaw bardagamaður, fylgdi eftir með sínum sterka vinstri krók og niður fór Singdam.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið