Mjölnismaðurinn Bjarki Thor mætir Alan Procter á FightStar 9 bardagakvöldinu í London í kvöld. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og ríkir mikil spenna fyrir bardaganum.
Bjarki Thor er í síðasta bardaga kvöldsins en 17 bardagar verða á bardagakvöldinu í kvöld. Fyrsti bardagi kvöldsins hefst kl 17 á íslenskum tíma og ætti Bjarki að byrja um 22 leytið í kvöld samkvæmt heimildum MMA Frétta. Það gæti verið hálftíma fyrr eða hálftíma seinna enda fer það allt eftir því hversu fljótt bardagarnir á undan klárast.
Hægt er að kaupa löglegt streymi á bardagana hér og kostar 6,99 pund (811 kr). Einnig verða bardagarnir sýndir á Drukkstofu Óðins í Mjölni.
Inngöngulag Bjarka Thors í kvöld
Bjarki Thor: Fannst hann vera hálf óstyrkur
Alan Procter: Ætla að klára Bjarka Thor
Alan Procter ætlar að láta byggja styttu af sér á Íslandi
Alan Procter ætlar að bjóða sig fram til forseta eftir að hann sendir Bjarka Thor í draumalandið