Björn Lúkas Haraldsson (2-0) hefur leik á Heimsmeistaramótinu í MMA á morgun. Björn mætir Spánverja í fyrstu umferð.
Heimsmeistaramót áhugamanna í MMA fer fram í Barein 12. til 19. nóvember. Mótið var formlega sett af stað í dag en fyrstu bardagar fara fram á morgun. Dregið var í flokka í dag og dróst Björn Lúkas gegn Ian Kuchler frá Spáni. Samkvæmt Tapology verður þetta fyrsti MMA bardagi Kuchler.
Hægt verður að fylgjast með stöðu mála á MyNextMatch.com en hátt í 80 bardagar fara fram á morgun. Þá verður einnig hægt að horfa á bardagana með því að ná í smáforritið Bahrain TV.