HomeErlentCejudo með hornhimnusár og mjúkvefjaskemmdir eftir augnpotið

Cejudo með hornhimnusár og mjúkvefjaskemmdir eftir augnpotið

Henry Cejudo mætti Song Yadong í aðalbardaga UFC Seattle um síðustu helgi sem endaði með tæknilegri ákvörðun eftir að þurfti að stöðva bardagann vegna augnpots sem Cejudo varð fyrir í þriðju lotu. Einhverjir sökuðu Cejudo um leikaraskap og sögðu hann vera að leita að leið út en nú hefur komið í ljós að hann varð fyrir töluverðum meiðslum.

Song Yadong gaf Cejudo tvöfalt augnpot í þriðju lotu sem skildi hann eftir með tvísýni, hornhimnusár og mjúkvefjaskemmdir í auganu. Cejudo nýtti sér allar 5 mínúturnar sem hann hafði rétt á til þess að jafna sig og hélt áfram og kláraði þriðju lotu þó það væri augljóst að augað væri enn að trufla hann. Eftir lotuna viðurkenndi hann fyrir lækni og dómara að hann gæti ekki séð, sagði að allt væri þokukennt og hann væri að sjá tvöfalt. Þar sem meira en helmingur af lotunum höfðu verið kláraðar voru dómarar látnir skora bardagann upp að þeim tímapunkti og Song Yadong dæmdur sigurinn.

Á þriðjudaginn var Cejudo að taka upp hlaðvarpsþáttinn Pound 4 Pound með Kamaru Usman þar sem hann tjáði sig um málið. Hann sagðist enn sjá allt þokukennt og tvöfalt með vinstra auganu. Hann sagði að augnlæknirinn sem skoðaði hann hafði sagt að ef litli puttinn hefði hitt hann í sjáaldur væri hann blindur. Hann bætti svo við að atvikið hefði kostað hann 150.000 dollara eða yfir 20 milljónir króna.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið