ADCC European Trials fer fram í Póllandi á laugardaginn. Þar munu fjórir keppendur frá Mjölni keppa en sigurvegarinn í hverjum flokki fær boðsmiða á ADCC mótið í haust.
ADCC er sterkasta glímumót heims en mótið er haldið annað hvert ár. Mörgum af bestu glímumönnum heims er boðið að keppa á mótinu og þá fá sigurvegarar síðasta móts sjálfkrafa þátttökurétt. Það er einnig hægt að vinna sér inn þátttökurétt með sigri á úrtökumótum líkt og fer fram um helgina. ADCC er með tvö úrtökumót í Bandaríkjunum, tvö í Evrópu, eitt í Suður-Ameríku og eitt í Asíu.
Seinna úrtökumótið í Evrópu fer fram á laugardaginn í Poznan í Póllandi. Margir af færustu glímumönnum Evrópu munu freista þess að tryggja sér þátttökurétt á mótinu með því að vinna sinn flokk.
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir keppir í -60 kg flokki en í hennar flokki eru 23 keppendur skráðar til leiks. Valentin Fels Camilleri keppir í -77 kg flokki en þar er 41 keppandi skráður til leiks. Þeir Kristján Helgi Hafliðason og Halldór Logi Valsson keppa svo báðir í -88 kg flokki en þar eru 36 keppendur skráðir til leiks. Þetta eru því stórir flokkar og ljóst að sigurvegarinn í hverjum flokki þarf að fara í gegnum margar glímur til að vinna sér inn þátttökurétt á ADCC.
Hægt er að horfa á mótið hjá FloGrappling hér gegn greiðslu. Mánaðargjald hjá FloGrappling kostar um það bil 1.500 kr en glímurnar byrja kl. 9:30 á íslenskum tíma.
Stóra ADCC mótið fer fram í Kaliforníu í haust en Gunnari Nelson hefur tvívegis verið boðið að keppa á mótinu, 2009 og 2011, og er hann eini Íslendingurinn sem hefur keppt á mótinu til þessa.