Í Föstudagstopplista dagsins skoðum við tíu bestu evrópsku bardagamennina. Evrópa hefur verið að sækja í sig veðrið og hafa fjölmargir evrópskir bardagamenn brotist fram á sjónarsviðið á undanförnum árum.
10. Mamed Khalidov – Rússland/Pólland
KSW meistarinn er einn besti bardagamaður heims utan UFC. Hann er ein stærsta stjarnan í MMA í Póllandi og sagan segir að hann hafi hafnað UFC á sínum tíma þar sem hann fær betur borgað með því að berjast í Póllandi heldur en í Bandaríkjunum (þá spila tekjur frá auglýsingum stórt hlutverk).
9. Joanna Jedrzejczyk – Pólland
Þessi pólski Muay Thai meistari fær næsta titilbardaga í hinni nýskipuðu strávigt. Er í 1. sæti á styrkleikalista UFC í strávigt kvenna og hefur sigrað báða bardaga sína í strávigtinni.
8. Ali Bagautinov – Rússland
Barðist um titilinn í fluguvigtinni gegn Demetrious Johnson. Átti ekki mikla möguleika gegn meistaranum og er í dag í 7. sæti í þunnskipaðri fluguvigt UFC.
7. Gunnar Nelson – Ísland
Okkar maður skipar 7. sæti listans. Hefur sigrað fjóra af fimm bardögum sínum í UFC og situr í 14. sæti í einum erfiðasta þyngdarflokki UFC.
6. Tarec Saffiedine – Belgía
Belginn knái er nánast alltaf meiddur en situr samt sem áður í 9. sæti styrkleikalista UFC í veltivigtinni. Þessi fyrrum Strikeforce meistari hefur aðeins tvisvar barist í UFC á síðustu tveimur árum og hefur þrisvar þurft að hætta við bardaga vegna meiðsla – nú síðast fyrir bardaga gegn Matt Brown. Er engu að síður með hættulegt Muay Thai og skemmtilegur áhorfs.
5. Gegard Mousasi – Armenía/Holland
Mousasi er kannski ekki 100% evrópskur. Foreldrar hans eru armenskir en Mousasi fæddist í Íran og flutti fjögurra ára til Hollands. Hefur nánast alla tíð æft og búið í Hollandi og á langan bardagaferil að baki (42 bardagar í MMA) þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára gamall. Var nálægt því að fá titilbardaga en tap gegn Machida í fyrra setti þau plön á hlið. Margir bíða eftir því að hann springi almennilega út og komist á toppinn.
4. Michael Bisping – England
Hefur í mörg ár verið meðal fremstu bardagamanna í Evrópu þrátt fyrir að hafa aldrei barist um titil í UFC. Það fer að styttast í annan endan á ferli hans en er enn sem komið er meðal þeirra fremstu í millivigt í UFC.
3. Conor McGregor – Írland
Þessi stórskemmtilegi Íri er einum bardaga frá titilbardaga í UFC. Sigri hann Dennis Siver á sunnudagskvöldið mun hann mæta Aldo. Líklegt er að sá bardagi færi fram í Írlandi þar sem tugir þúsunda munu gera allt vitlaust.
2. Khabib Nurmagomedov – Rússland
Hefur sigrað alla 22 bardaga sína og væri sennilega búinn að fá titilbardaga í léttvigt UFC ef ekki væri fyrir hnémeiðsli. Er í 2. sæti á styrkleikalista UFC og hefur vakið athygli fyrir skítkast á meistarann og glímu við björn.
1. Alexander Gustafsson – Svíþjóð
Svíinn Alexander Gustafsson er óumdeilanlega besti bardagamaður Evrópu í dag. Sá sem næst hefur komist því að sigra Jon Jones og fær líklegast annað tækifæri á beltinu takist honum að sigra Anthony Johnson síðar í mánuðinum. Æfir mest megnis í Svíþjóð (þó hann æfi einnig hjá Alliance í Bandaríkjunum) og það sýnir að Evrópa er að sækja á. Áður fyrr voru flestir evrópska bardagamanna frá Englandi en nú eru topp bardagamenn hvaðanæva úr Evrópu.
Aðrir sem voru nálægt því að komast á listann: Alistair Overeem (Holland), Andrei Arlovski (Hvíta-Rússland), Andrei Koreshkov (Rússland), Joanna Calderwood (Skotland).