Gunnar Nelson hélt til Dublin í morgun þar sem lokaundirbúningur fyrir bardagann gegn Alan Jouban fer fram. Gunnar mætir Jouban á UFC bardagakvöldinu í London þann 18. mars.
Rúmar tvær vikur eru í bardagann og mun Gunnar dvelja í Dublin þar til hann ferðast til London þar sem bardaginn fer fra. Gunnar mun æfa hjá SBG í Dublin líkt og hann hefur gert allan ferilinn undir handleiðslu John Kavanagh.
Með Gunnari í för voru bardagabræðurnir Bjarki Þór Pálsson og Magnús Ingi Ingvarsson en þeir munu æfa hjá SBG í Dublin í 12 daga. Þór mætir Alan Procter á FightStar bardagakvöldinu í London þann 22. apríl.
Hjá SBG í Dublin eru yfir 30 bardagamenn þar sem eiga bardaga í vændum núna. Það verða því margir hungraðir bardagamenn á dýnunum á næstu vikum og góður staður fyrir strákana að vera á.