UFC 231 fer fram í kvöld í Toronto, Kanada. Gunnar Nelson snýr aftur í búrið eftir langa fjarveru og tveir frábærir titilbardagar eru á dagskrá en hvenær byrjar allt þetta?
Hvorki meira né minna en 13 bardagar eru á dagskrá á laugardagskvöldið og hefst fyrsti bardaginn kl. 23 á Íslandi. Aðalhluti bardagakvöldsins hefst svo kl. 3 á íslenskum tíma. Alla upphitunarbardaga kvöldsins er hægt að horfa á Fight Pass rás UFC með því að gerast áskrifandi af Fight Pass (tæpar 1000 ISK á mánuði). Hægt er að fá fría prufuáskrift í eina viku.
Aðalhluti bardagakvöldsins er sýndur á Stöð 2 Sport en einnig er hægt að kaupa (Pay Per View) aðalhluta bardagakvöldsins á Fight Pass (mánaðargjald+kaup á Pay Per View).
Gunnar er í þriðja bardaganum á aðalhluta bardagakvöldsins og er að berjast í kringum 4 leytið á íslenskum tíma. Tímasetningin er ekki heilög enda fer þetta allt eftir því hversu fljótir bardagarnir á undan eru að klárast.
Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 3:00)
Fjaðurvigt: Max Holloway gegn Brian Ortega
Fluguvigt kvenna: Valentina Shevchenko gegn Joanna Jędrzejczyk
Veltivigt: Alex Oliveira gegn Gunnari Nelson
Fjaðurvigt: Hakeem Dawodu gegn Kyle Bochniak
Léttþungavigt: Jimi Manuwa gegn Thiago Santos
Fox Sports 1 upphitunarbardagar (hefjast kl. 1:00)
Strávigt kvenna: Cláudia Gadelha gegn Nina Ansaroff
Léttvigt: Olivier Aubin-Mercier gegn Gilbert Burns
Fluguvigt kvenna: Katlyn Chookagiangegn Jessica Eye
Millivigt: Elias Theodorou gegn Eryk Anders
UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast 23:00)
Bantamvigt: Brad Katona gegn Matthew Lopez
Veltivigt: Chad Laprise gegn Dhiego Lima
Léttvigt: Carlos Diego Ferreira gegn Kyle Nelson
Léttþungavigt: Devin Clark gegn Aleksandar Rakić