Thursday, March 28, 2024
HomeErlentJohn Kavanagh: Það er enginn andstæðingur

John Kavanagh: Það er enginn andstæðingur

Gunnar Nelson
Mynd: Kjartan Páll Sæmundsson.

John Kavanagh, yfirþjálfari Gunnars Nelson og Conor McGregor skrifaði skemmtilegan pistil nýlega þar sem hann tjáir sig um breytingar og mögulegar breytingar á andstæðingum Gunnars og Conor. Hann segir engu máli skipta fyrir bardagamenn sína hver standi gegn þeim í búrinu.

Gunnar Nelson átti upphaflega að mæta John Hathaway á UFC 189 en á þriðjudaginn síðasta kom í ljós að Hathaway væri meiddur og gæti ekki barist. Í hans stað kemur Brandon Thatch.

„Gunnar var sofandi á meðan bardagi hans breyttist. Hann vaknaði seint þann dag og ég sagði honum að hann væri kominn með nýjan andstæðing. Í stað þess að spyrja hver það væri sagði hann einfaldlega ‘Ó, okey’ og fékk sér morgunmat. Ég er mjög stoltur af strákunum fyrir að vera svona,“ sagði John Kavanagh.

Það sama má segja um Conor McGregor. Á þriðjudaginn bárust þær fregnir að Jose Aldo væri með brákað rifbein og gæti mögulega ekki barist.

„Forseti UFC, Dana White, hringdi í mig og spurði hvernig mér litist á að Chad Mendes kæmi í stað Aldo. Conor var sofandi þá svo ég gekk í herbergið hans og sagði honum að Mendes gæti komið í stað Aldo. Hann opnaði annað augað og sagði: ‘Þeir eru allir eins’ og hélt áfram að sofa. Samningaviðræðurnar voru ekki lengri en það,“ sagði Kavanagh enn fremur.

Kavanagh hefur alltaf sagt að andstæðingurinn skipti ekki máli. „Það er enginn andstæðingur“ eins og hann orðar það. SBG liðið hefur alltaf einbeitt sér að því að bæta sig í stað þess að æfa fyrir ákveðinn andstæðing því eins og hefur oft gerst með Gunnar getur andstæðingurinn breyst á augabragði. Markmiðið er alltaf að gera bardagamennina betri í undirbúningnum fyrir bardagann.

Kavanagh telur að íþróttasamband Nevada fylkis gæti meinað Aldo að berjast með aðeins sólarhrings fyrirvara ef hann stenst ekki læknisskoðun. Aldo mun vilja berjast en læknirinn gæti meinað honum að berjast ef hann telur að hann sé ekki í standi til að keppa. Þá kæmi Chad Mendes í hans stað.

„Mendes hefur verið sagt að ná tilsettri þyngd svo hann gæti staðið á vigtinni í stað Aldo. Þannig lagað gerist oft í minni bardagasamtökum en þetta er fyrir UFC titil. Það er ekkert stórmál fyrir okkur, það er eiginlega bara spennandi ef ég á að segja eins og er. Hver mun standa á vigtinni þegar við mætum? Við munum ekki vita það fyrr en daginn fyrir bardagann.“

Pistill Kavanagh er áhugaverð lesning en allan pistilinn má lesa hér.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular