Friday, April 26, 2024
HomeForsíðaMatt Brown mætir Nate Diaz á UFC 189

Matt Brown mætir Nate Diaz á UFC 189

diaz brownUFC 189 verður bara betra og betra. Pörupilturinn Nate Diaz mætir Matt Brown í bardaga sem gæti orðið stórkostleg skemmtun. UFC staðfesti þetta seint í gærkvöldi.

Í aðalbardaga UFC 189 mætast þeir Conor McGregor og Jose Aldo um fjaðurvigtartitilinn en það sem mestu máli skiptir fyrir okkur Íslendinga er að Gunnar Nelson mætir John Hathaway. Þeir Robbie Lawler og Rory MacDonald mætast um veltivigtartitilinn sama kvöld og má áætla að bardagi Diaz og Brown verði þriðji síðasti bardagi kvöldsins. Diaz snýr aftur í veltivigt eftir ágætis feril í léttvigt

Tyron Woodley hefur óskað eftir að fá bardaga við Johny Hendricks á sama bardagakvöldi og ef honum verði af ósk sinni er óhætt að setja UFC 189 í hóp með stærstu bardagakvöldum allra tíma. Þá staðfesti UFC einnig bardaga milli Mike Swick og Alex Garcia á UFC 189 og er það fimmti veltivigtarbardaginn á kvöldinu

UFC 189 fer fram þann 11. júlí í Las Vegas. Bardagakvöldið lítur svona út sem stendur:

Titilbardagi í fjaðurvigt: Conor McGregor gegn Jose Aldo
Titilbardagi í veltivigt: Rory MacDonald gegn Robbie Lawler
Veltivigt: Nate Diaz gegn Matt Brown
Veltivigt: Gunnar Nelson gegn John Hathaway
Fjaðurvigt: Dennis Bermudez gegn Jeremy Stephens
Veltivigt: Brandon Thatch gegn John Howard
Veltivigt: Mike Swick gegn Alex Garcia

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular