Gunnar Nelson berst á UFC bardagakvöldinu í London þann 18. mars. Núna er uppröðun bardaganna klár eins og má sjá hér.
Eins og áður var vitað er Gunnar í næstsíðasta bardaga kvöldsins (e. co-main event) en Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban. Corey Anderson og heimamaðurinn Jimi Manuwa eru svo í aðalbardaga kvöldsins. Það var alltaf vitað að Brad Pickett yrði á aðalhluta bardagakvöldsins enda verður þetta síðasti bardagi hans á ferlinum.
Það var alltaf spurning hver fyrsti bardaginn á aðalhlutanum yrði en nú er það ljóst að það verður Bretinn Arnold Allen og Finninn Makwan Amirkhani. Joe Duffy verður svo í síðasta upphitunarbardaga kvöldsins en hann mætir Svíanum Reza Madadi.
Aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 21 á íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.