Þeir Birgir Örn Tómasson og Diego Björn Valencia berjast báðir í MMA í kvöld. Bardagarnir fara fram í Litháen og verður hægt að sjá þá í beinni útsendingu í gegnum Facebook.
Strákarnir eru báðir að berjast atvinnubardaga í kvöld og er því um að ræða þrjár, fimm mínútna lotur. Birgir Örn (1-0) er í 8. bardaga kvöldsins en hann mætir Renatas Buskus (1-1). Birgir hefur ranglega verið kallaður Bjarki Ómarsson af aðstandendum bardagakvöldsins sem er þó ekki skrítið þar sem fjórir íslenskir Bjarkar berjast í MMA. Birgir fékk í gær allt í einu nýjan andstæðing og þurfti skyndilega að létta sig um tvö kíló í viðbót.
Diego Björn Valencia (2-1) er í næstsíðasta bardaga kvöldsins og mætir Laurynas Urbonavicius (7-1) en bardaginn fer fram í léttþungavigt. Báðum bardögunum verður streymt á opinberri Facebook síðu Birgis hér.
Streymið af bardaga Birgis er hér: