Það er langt síðan við höfum tekið upp hlaðvarp og var löngu kominn tími á það. Enginn sérstakur gestur var í nýjasta þættinum en þeir Pétur og Óskar ræddu ítarlega um UFC 196.
Það var af nógu að ræða eftir atburði helgarinnar og kom Conor McGregor mikið fyrir í umræðunni. Þá var einnig talað aðeins um Jon Jones og Daniel Cormier og komandi bardaga Gunnars Nelson.
Podcastið í dag var tekið upp í stúdíói hjá Maurum og þökkum við þeim kærlega fyrir aðstöðuna.