Friday, March 29, 2024
HomeForsíðaSjö verðlaun á Grapplers Industries í París

Sjö verðlaun á Grapplers Industries í París

Bjarni, Arna, Valentin og Pétur Óskar.

Fjórir keppendur frá Mjölni kepptu á Grapplers Industries mótinu í París um helgina. Hópurinn endaði með sjö verðlaun eftir helgina.

Þau Arna Diljá Guðmundsdóttir, Bjarni Kristjánsson, Pétur Óskar Þorkelsson og Valentin Fels Camilleri kepptu á mótinu um helgina í París. Upphaflega átti keppnishópurinn að vera mun stærri en flug hópsins féll niður vegna gjaldþrots WOW Air. Fjórmenningarnir sem kepptu höfðu þegar komið sér út áður en flugfélagið fór á hausinn.

Á Grapplers Industries mótunum keppa allir við alla í flokknum en ef flokkurinn er stór er skipt upp í riðla og fá því allir margar glímur.

Arna Diljá keppti í -75 kg flokki hvítbeltinga kvenna í gær. Í galla tók Arna gullið eftir tvær glímur við sama andstæðinginn en í nogi endaði hún í 2. sæti eftir tvær glímur. Í dag keppti hún síðan í opnum flokki kvenna hvítbeltinga. Í gallanum tók hún gullið eftir eina glímu og tók einnig gullið í nogi eftir tvær glímur. Flottur árangur hjá Örnu!

Bjarni Kristjánsson keppti í +105 kg flokki svartbeltinga. Bjarni er brúnt belti og um 95 kg en enginn var skráður í hans flokk. Hann var því færður upp um beltaflokk og þyngdarflokk.

Bjarni hafnaði í 2. sæti í nogi í tveggja manna flokki og 4. sæti í galla í gær. Í dag keppti hann í opnu flokkunum í galla og án galla. Bjarni vann opna flokkinn í gallanum eftir að andstæðingurinn mætti ekki. Í nogi vann hann fyrstu tvær glímurnar sínar en datt út í 8-manna úrslitum.

Pétur Óskar Þorkelsson keppti í -70 kg flokki brúnbeltinga í gær. Pétur fékk silfur í gallanum en komst ekki á pall í nogi.

Valentin Fels keppti í -77 kg flokki brúnbeltinga. Flokkurinn hans var nokkuð stór og vann hann þrjár af fjórum glímunum sínum í riðlinum. Hann fór því áfram í undanúrslit þar sem hann tapaði og endaði í 4. sæti.

Valentin keppti svo í opna flokkinum í nogi í dag þar sem hann vann fyrstu tvær glímurnar sínar en féll úr leik í 8-manna úrslitum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular