Eftir að Glacier Fight Night var haldið í fyrsta skipti á Ásbrú var ljóst að skipuleggjendur ætluðu sér stóra hluti og vildu skapa geggjaðar minningar og upplifanir fyrir áhorfendur. Sú stefna heldur svo sannarlega áfram með nýjasta útspili GFN sem haldið verður í þriðja skiptið í október næstkomandi. Rétt í þessu var staðfest að við munum sjá þriðju viðureignina milli Hrafns Þráinssonar gegn Will Bean sem er líklega bölvaðasti MMA-bardagi Íslandssögunnar! Þeir hafa tvisvar sinnum barist áður en án þess að fá fullgildan sigurvegara. En núna fáum við loksins að loka þessum dramatíska kafla í MMA-sögunni.
Misskilningurinn á klukkunni og augnapotið ljóta
Hrafn Þráinsson og Will Bean mættust í fyrsta skipti á heitum sumardegi í Doncaster, Englandi, á Caged Steel 32 árið 2023. Þeir voru báðir ósigraðir sem áhugamenn í MMA og höfðu báðir barist á Caged Steel áður og hrifu áhorfendur upp úr skónum með dóminerandi glímugetu. Fyrsta viðureignin þeirra var upp á Super Lightweight-titilinn í 165 punda flokknum. Þar sem um var að ræða titilbardaga í áhugamennskunni varð til misskilningur þar sem tímavörður bardagans hélt að loturnar ættu að vera 5 mínútur hver en í raun og veru voru loturnar 3 mínútur hver.
Bardaginn milli Hrafns og Bean var hnífjafn en Will Bean tókst að ná bakinu á Hrafni rétt þegar fyrsta lotan var við það að klárast eða þegar 3 mínútur voru að líða. Bardaginn stöðvaðist hins vegar aldrei og hélt áfram langt yfir þriggja mínútna viðmiðið, þangað til Hrafn horfði á dómarann og spurði hvað væri í gangi í miðjum bardaganum. Í þeirri andrá læsti Will Bean in Rear Naked Choke og Hrafn tappaði til þess að losa Bean af hálsinum sínum og ræða við dómarann. Þar sem að lotan var í raun og veru búin og dómarinn fattaði mistökin var ákveðið að dæma bardagann annaðhvort No Contest eða láta bardagann halda áfram. Báðir bardagamennirnir samþykktu að halda áfram. Bean var alveg vonlaus í seinni lotunum og vann Hrafn á einróma dómaraákvörðun eftir þriggja lotu bardaga. Will Bean og félagar voru mjög ósáttir og kröfðust þess að bardaginn yrði dæmdur No contest afturvirkt. Það endaði sem svo að bardaginn var dæmdur No contest en Hrafn var þá kominn heim til Íslands með beltið. Hrafn sagði seinna að Will Bean mætti koma til Íslands og sækja beltið ef Bean hefði áhuga á a reyna á það.
Hrafn og Will Bean mættust svo aftur á Caged Steel 34 þar sem sannur sigurvegari yrði loksins krýndur í viðureigninni. Það fór ekki betur en svo að Will Bean potaði hrikalega djúpt í augað á Kumma í annarri lotu endurleiksins sem varð til þess að bardaginn var stöðvaður og dæmdur No Contest. Kapparnir eru því búnir að mætast tvisvar sinnum en enginn hefur verið krýndur sigurvegari. Augnpotið átti sér stað í annarri lotu bardagans en Hrafn vann fyrstu lotuna sannfærandi og var að sigra aðra lotuna sannfærandi. Einhverjir áhorfendur vildu meina að Will Bean hefði potað viljandi í augun á Hrafni til að losna úr bardaganum eða í það minnsta breyta um stefnu í bardaganum.
Á Glacier Fight Night 3 verður þríleiknum lokað og fáum við vonandi loksins sigurvegara í þessa viðureign. Hrafn hefur ekki barist í MMA eftir seinni viðureignina gegn Will Bean en Will sjálfur barðist einu sinni og tapaði þá sínum fyrsta bardaga í MMA. Hrafn mun mæta ósigraður til leiks á Glacier Fight Night 3 og skrifa lokakaflann í MMA-söguna sína.





