Það var frábær stemning í O2 höllinni í gærkvöldi þar sem okkar maður, Gunnar Nelson, barðist gegn Omari Akhmedov. Frábærir bardagar áttu sér stað í gær en í aðalbardaga kvöldsins mættust þeir Alexander Gustafsson og Jimmy Manuwa.
Bardagarnir áttu upphaflega að byrja kl 17:30 en þar sem bardaga Davey Grant og Roland Delorme var aflýst seinkaði bardögunum um hálftíma.
Í fyrsta bardaga kvöldsins mættust þeir Phil Harris og Louis Gaudinot. Phil Harris reyndi fellu upp við búrið en gleymdi að verja hálsinn og Gaudinot nýtti sér það. Eftir að Gaudinot var komið með ágætis tak utan um hálsinn á Harris hoppaði hann niður (guard pull) og kláraði “guillotine” henginguna eftir aðeins 1:13 í fyrstu lotu.
Annar bardaginn var háður milli Igor Araujo og Danny “The Cheesecake Assassin” Mitchell. Heimamaðurinn Mitchell fékk mikinn stuðning frá áhorfendum og hrópuðu áhorfendur “Cheesecake” til stuðnings. Það dugði ekki til þar sem Araujo var einfaldlega betri bardagamaður en Mitchell og sigraði eftir dómaraákvörðun.
Þriðji bardagi kvöldsins var hreint út sagt versti bardagi kvöldsins en hvorugur bardagamanna á mikla framtíð fyrir sér í UFC. Brad Scott og Claudio Henrique da Silva börðust í þrjár lotur þar sem Silva sigraði. Brad Scott var þó nálægt því að klára Silva í 2. lotu þar sem Silva var vankaður. Silva er hræðilegur “striker” en Scott skárri. Eitt undarlegasta atvik kvöldsins var þegar Silva kvartaði yfir sparki í klofið en dómarinn lét bardagann halda áfram þar sem hann sá ekkrt athugavert við sparkið. Silva neitaði að halda áfram þrátt fyrir tilskipun dómarans og hefði Scott getað nýtt tækifærið og sótt á Silva. Hann gerði það þó ekki og var eitt stórt spurningamerki!
Það var stórkostleg stemning í höllinni þegar Svíin Mats Nilsson mætti Luke Barnatt. Um 2000 Svíar voru í höllinni og studdu sinn mann vel. Bretarnir létu ekki Svíana kæfa sinn stuðning og myndaðist frábær stemning. Luke Barnatt var þó betri bardagamaður þetta kvöld og vankaði Nilsson með haussparki og fylgdi svo eftir með grimmum höggum. Barnatt sigraði eftir tæknilegt rothögg í fyrstu lotu.
Í síðasta bardaga á upphitunarhluta kvöldsins mættust þeir Cyrille Diabate og Ilir Latifi. Nákvæmlega ekkert gerðist fyrstu mínútuna eða þangað til Latifi fór í fellu og náði Diabate niður. Latifi sýndi að hann á heima í léttþungavigtinni og kláraði Diabate með “guillotine” hengingu. Diabate hafði gefið það út að þetta yrði hans síðasti bardagi á ferlinum og endar 22 ára feril í bardagaíþróttum með 81 bardaga í sparkboxi og MMA.
Bardagi Brad Pickett og Neil Seery var næstur. Seery kom seint inn þegar Ian McCall meiddist en stóð sig frábærlega. Hann útboxaði boxarann Pickett og sýndi að hann á vel heima í UFC. Hann hefur þó augljóslega ekki frábæra felluvörn og á það sennilega eftir að há honum í UFC. Pickett sigraði eftir dómaraákvörðun.
Í næst síðasta bardaga kvöldsins mættust þeir Melvin Guillard og Michael Johnson. Fyrirfram var búist við að þetta yrði besti bardagi kvöldsins en það rættist ekki. Guillard gerði lítið nema að bakka og reyna að ná gagnárás með beinni hægri. Það var ekki að ganga og var eins og það væri ekkert plan B. Það var eins og Guillard væri ekki andlega tilbúinn í þetta og gæti þetta verið í síðasta skipti sem við sjáum Guillard í UFC eftir aðeins tvo sigra í síðustu átta bardögum. Michael Johnson sigraði eftir dómaraákvörðun.
Það var gjörsamlega allt brjálað í höllinni þegar aðalbardagi kvöldsins var að hefjast. 2000 Svíar studdu þétt við bakið á Alexander Gustafsson og Bretarnir sömuleiðis við Jimmy Manuwa. Gustafsson var betri bardagamaður og rotaði Manuwa í 2. lotu. Það var frábær stemning í höllinni í þessum bardaga og voru Svíarnir gríðarlega ánægðir með sinn mann Gustafsson.
Þetta var frábært bardagakvöld og frábær upplifun að fá að vera á staðnum. MMA fréttir mun án nokkurs vafa halda áfram að fara á fleiri UFC viðburði.