Í föstudagstopplista dagsins skoðum við tíu bestu ljósmyndirnar í MMA. Þessar myndir hafa fangað ótrúleg augnablik í sögu MMA en hér eru þær tíu bestu að okkar mati.
10. Mark Hunt kýlir Stefan Struve
Í þessum bardaga var ótrúleg endurkoma Mark Hunt fullkomnuð. Hann hafði verið á sex bardaga taphrynu en sigurinn á Struve var fjórði sigur hans í röð. Á þessari ótrúlegu mynd smellhittir Hunt á kjálkann með þeim afleiðingum að Struve kjálkabrotnaði.
9. Jon Jones svæfir Lyoto Machida
Í desember 2011 mætti Jon Jones fyrrum meistaranum Lyoto Machida í hans annarri titilvörn. Eftir brösuga byrjun vankaði Jones Machida og endaði svo á að svæfa Machida með “guillotine” hengingu í 2. lotu.
8. Sakuraba gegn Royce Gracie
Þessi 90 mínútna bardagi er einn merkilegasti bardagi í sögu MMA en á myndinni stekkur Sakuraba á Royce Gracie.
7. Dætur Mark Coleman eftir bardagann gegn Fedor Emelianenko.
Eftir að Fedor Emelianenko hafði sigraði Mark Coleman örugglega í Pride 2006 komu dætur Coleman grátandi í hringinn til að hitta pabba sinn. Það þótti umdeilt að láta börn horfa á pabba sinn laminn í klessu en samkvæmt viðtali við dæturnar árið 2012 hafa þær einungis góðar minningar af þessu kvöldi.
6. Sakuraba brýtur hönd Renzo Gracie
Sakuraba, eða “The Gracie killer” eins og hann var kallaður, sigraði fjóra Gracie fjölskyldumeðlimi á ferlinum. Á þessari mynd er hann að brjóta hönd Renzo Gracie eftir “kimura” uppgjafartak. Renzo Gracie neitaði að gefast upp og því brotnaði hönd hans. Á myndinni hér að neðan horfir Renzo á brotna höndina.
5. Wanderlei Silva rotar Quinton ‘Rampage’ Jackson
Rígur Wanderlei Silva og Rampage er einhver sá besti í sögu MMA. Þeir mættust þrisvar sinnum þar sem Wanderlei Silva rotaði Rampage tvisvar. Hér liggur Rampage rotaður á köðlunum eftir þung hnéspörk frá Wanderlei í öðrum bardaganum þeirra.
4. Lyoto Machida hneigir sig eftir að hafa rotað Ryan Bader
Eftir að Lyoto Machida rotaði Ryan Bader í ágúst 2012 hneigði hann sig fyrir honum í búrinu. Það er alltaf fallegt þegar bardagamenn sýna slíka virðingu.
3. Shogun gegn Lil Nog
Þegar Shogun var upp á sitt besta í Pride var hann nánast óstöðvandi. Bardagi hans gegn Lil Nog er uppáhalds bardagi margra en á þessari mynd er hann að hoppa að Lil Nog með krepptan hnefa.
2. Anderson Silva rotar Vitor Belfort
Eitt ótrúlegasta rothögg allra tíma átti sér stað í febrúar 2011. Eftir mjög rólega fyrstu lotu kom Anderson Silva með þetta glæsilega framspark sem vankaði Belfort. Silva fylgdi sparkinu eftir með höggum í gólfinu og sigraði eftir tæknilegt rothögg í fyrstu lotu. Framspark í andlitið var nánast óséð í MMA fram að þessum bardaga en í dag sést þetta spark á nánast hverju einasta bardagakvöldi þó það hitti ekki alltaf.
1. Fedor Emelianenko gegn Andrei Arlovski
Fedor Emelianenko og Andrei Arlovski mættust í Affliction bardagasamtökunum í janúar 2009. Arlovski byrjaði bardagann vel en eftir að hafa reynt fljúgandi hnéspark kom Emelianenko með gagnhögg sem steinrotaði Arlovski. Á myndinni gengur Rússinn rólega burt á meðan Arlovski liggur óvígur eftir.
Mjög flott samansafn.